REITIR: Breytingar á framkvæmdastjórn
Kristófer Þór Pálsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri eignaþróunar hjá Reitum. Um er að ræða nýtt hlutverk innan félagsins. Kristófer mun leiða umbreytingaverkefni innan núverandi eignasafns í takt við aukna áherslu félagsins á þróun og framkvæmdir innan eignasafnsins. Hann mun einnig greina tækifæri til áframhaldandi útvíkkunar í nýja eignaflokka og móta langtímastefnu fyrir eignasafnið og einstakar eignir. Kristófer mun vinna þvert á svið félagsins og með viðskiptavinum og öðrum hagaðilum að fjölbreyttum verkefnum sem snúa að eignasafni Reita.
Kristófer býr yfir yfirgripsmikilli þekkingu á sviði fasteignamarkaðar- og þróunar, greininga og fjárfestinga. Hann hefur starfað hjá Reitum í yfir 10 ár, m.a. sem framkvæmdastjóri fjárfestinga, greininga og viðskiptaþróunar og framkvæmdastjóri útleigusviðs.
Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita:
„Við sjáum aukin tækifæri til að þróa og umbreyta eignum innan víðfeðms eignasafns Reita sem telur í dag tæplega 500.000 fermetra í 150 fasteignum. Reynsla Kristófers mun nýtast vel á þeirri vegferð enda býr hann yfir mikilli þekkingu á fasteignamarkaði og fjárfestingum í fasteignaverkefnum. Með þessari breytingu erum við enn betur í stakk búin til áframhaldandi sóknar þar sem við leggjum áherslu á ný tækifæri og breytta nýtingu í okkar fjölbreytta og umfangsmikla eignasafni, auk vaxtar í nýjum eignaflokkum og þróunar- og uppbyggingarverkefnum sem gagnast samfélaginu.“
Upplýsingar veitir Guðni Aðalsteinsson forstjóri á netfanginu [email protected] eða í síma 575 9000 eða 624 0000.