Fredag 6 Februari | 00:16:11 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2023-11-23 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-24 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-25 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-04-18 - Årsstämma
2022-02-25 - Bokslutskommuniké 2021
2021-11-26 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-27 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-31 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-05-05 - Årsstämma

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorHandel & varor
IndustriDagligvaror
Síldarvinnslan är ett isländskt bolag verksamma inom fiske. Bolaget bedriver verksamhet genom hela värdekedjan. Verksamhet innehas idag på Island, där en stor del av fångsten exporteras. Utöver erbjuder bolaget fiskolja och tillhörande biprodukter. Síldarvinnslan etablerades 1957 och har sitt huvudkontor på Island.

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2023-03-29 11:09:58

Stjórn Síldarvinnslunnar hf. hefur samþykkt að hefja viðræður við Samherja hf. um kaup á helmingshlut í sölufélaginu Ice Fresh Seafood ehf. Telur stjórnin það rökrétt framhald af vexti og auknum umsvifum Síldarvinnslunnar hf. á síðustu árum, m.a. með kaupum á Vísi hf., að kanna frekari möguleika á því að  styrkja sölu- og markaðsmál félagsins.

Ice Fresh Seafood ehf. hefur lengi verið leiðandi fyrirtæki í sölu- og markaðssetningu sjávarafurða frá Íslandi og hefur meðal annars séð um sölu á hluta afurða Síldarvinnslunnar og Vísis á undanförnum árum. Sölunet fyrirtækisins nær til yfir 60 landa og á bak við það er áratuga þekking og viðskiptasambönd á helstu mörkuðum fyrir íslenskt sjávarfang.

Ice Fresh Seafood ehf. er að fullu í eigu Samherja hf. sem er eigandi að 30,06 % hlut í Síldarvinnslunni hf. Með vísan til ákvæða laga og starfsreglna stjórnar hefur stjórnarformaður Síldarvinnslunnar hf., Þorsteinn Már Baldvinsson, sem er jafnframt forstjóri Samherja hf., því ekki tekið þátt í meðferð máls þessa og ákvörðun innan stjórnar Síldarvinnslunnar hf.

Gerð verður nánari grein fyrir efni og niðurstöðum fyrirhugaðra viðræðna og viðskipta um leið og slíkar upplýsingar liggja fyrir.

Stjórn Síldarvinnslunnar hf.