Síminn hf. - Uppgjör 2. ársfjórðungs 2026 verður birt eftir lokun markaðar 19. ágúst 2026
Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung 2026 miðvikudaginn 19. ágúst næstkomandi.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn fimmtudaginn 20. ágúst í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst klukkan 8:30 og eru fjárfestar og markaðsaðilar sérstaklega boðnir velkomnir.
Á fundinum munu María Björk Einarsdóttir forstjóri og Hjörtur Þór Steindórsson fjármálastjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Kynningarefni fundarins verður aðgengilegt á fjárfestavef Símans og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í streymi á vef Símans. Hægt er að senda spurningar á [email protected] og þeim verður svarað í lok fundar.