Sjóvá - Árshlutauppgjör vegna 2. ársfjórðungs 2026
1.138 m.kr. hagnaður og samsett hlutfall 91,2% á fyrstu sex mánuðum ársins
Annar ársfjórðungur 2026
- Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 744 m.kr. (2F 2025: 690 m.kr.)
- Hagnaður af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta 405 m.kr. (2F 2025: 439 m.kr. tap)
- Hagnaður tímabilsins 900 m.kr. (2F 2025: 60 m.kr. hagnaður)
- Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu 1,4% (2F 2025: -1,0%)
- Samsett hlutfall 91,5% (2F 2025: 92,1%)
Fyrstu sex mánuðir ársins 2026 og horfur
- Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 1.534 m.kr. (6M 2025: 1.511 m.kr.)
- Hagnaður af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta 204 m.kr. (6M 2025: 1.564 m.kr. tap)
- Hagnaður tímabilsins 1.138 m.kr. (6M 2025: 479 m.kr tap)
- Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu 1,0% (6M 2025: -1,1%)
- Samsett hlutfall 91,2% (6M 2025: 91,1%)
- Horfur fyrir árið 2026 og til næstu 12 mánaða eru óbreyttar og er afkoma af vátryggingasamningum fyrir árið 2026 og til næstu 12 mánaða áætluð 1.800 – 2.500 m.kr. og samsett hlutfall 93-95%
Hermann Björnsson, forstjóri:
Afkoma Sjóvár á öðrum ársfjórðungi var jákvæð um 900 m.kr og einkenndist af góðri afkomu af vátryggingastarfseminni en fjárfestingum undir væntingum. Hagnaður af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta nam 405 m.kr. og afkoma af vátryggingasamningum fyrir skatta var 744 m.kr. Þá var samsett hlutfall 91,5% á fjórðungnum.
Afkoma af fjárfestingum fyrir fjármagnsliði og skatta var 764 m.kr. og ávöxtun eigna í stýringu 1,4% sem er undir væntingum. Verðbréfamarkaðir á Íslandi, og sér í lagi hlutabréfamarkaður, hafa átt undir högg að sækja á árinu, og raunar síðustu 4-5 ár. Árið hefur einkennst af versnandi efnahagshorfum og óvissu í alþjóðamálum ásamt því að afkoma okkar af vaxtarfélögum hérlendis hefur valdið vonbrigðum. Allir eignaflokkar skiluðu jákvæðri afkomu að undanskildum skráðum hlutabréfum þar sem ávöxtun var neikvæð um 0,1%. Ávöxtun ríkisskuldabréfa var 1,9%, annarra skuldabréfa 2,0% og safnsins alls 1,4%.
Á öðrum ársfjórðungi lagði Sjóvá áfram áherslu á að styrkja samkeppnisstöðu sína og efla þjónustu við viðskiptavini. Á tímabilinu var nýtt samstarf við Icelandair kynnt þar sem viðskiptavinir geta valið að fá Stofnendurgreiðslu í formi Vildarpunkta. Samstarfið eykur virði Stofns, skapar viðskiptavinum aukið valfrelsi og styrkir samkeppnisstöðu Sjóvár með öflugra vildarkerfi.
Jafnframt kynnti Sjóvá nýja vernd í sjúkdómatryggingu sem nær til varðveislu á frjósemi í tengslum við krabbameinsmeðferð. Verndin er þróuð í samstarfi við Kraft, stuðningsfélags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein. Þessi nýja vernd er ánægjuleg og þörf viðbót til stuðnings ungu fólki sem stendur frammi fyrir krefjandi verkefni.
Í maí var nýtt skipulag innleitt hjá félaginu sem ætlað að styrkja enn frekar stöðu félagsins í breyttu samkeppnisumhverfi, efla frekar þjónustuupplifun og framþróun sem byggir á nánu samstarfi milli sviða og öflugum tæknilegum innviðum.
Á ársfjórðungnum var Sjóvá valið Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2026 með heildareinkunnina 4,5 af 5 mögulegum. Um er að ræða stærstu vinnumarkaðskönnun landsins sem byggir á svörum starfsfólks og staðfestir okkar sterku fyrirtækjamenningu, ánægt starfsfólk og getu félagsins til að laða að, þróa og halda í hæft starfsfólk. Þetta er sameiginlegur árangur allra starfsmanna sem leggja sitt af mörkum til þess að skapa vinnustaðarmenningu þar sem fólki líður vel og fær að dafna. Þá hlaut félagið 80 stig af 100 mögulegum og einkunnina B1 í UFS-mati Reitunar, sem er yfir meðaltali íslenska markaðarins og staðfestir áframhaldandi sterka stöðu félagsins í sjálfbærnimálum.
Með nýju skipulagi munum áfram einbeita okkur að þeim þáttum sem hafa skapað Sjóvá sterka stöðu á markaðnum. Nýjustu mælingar sýna að Sjóvá nýtur áfram mikils trausts og sterkrar tryggðar meðal viðskiptavina. Það er skýr staðfesting á þeirri áherslu sem félagið leggur á framúrskarandi þjónustu, faglega ráðgjöf og langtímasambönd við viðskiptavini.
Endurkaupaáætlun var hrint í framkvæmd 5. maí sl. og mun heildarkaupverð endurkaupanna nema að hámarki 500 m.kr. Keypt var um 0,3% af útistandandi hlutafé félagsins fyrir 146 m.kr. á öðrum ársfjórðungi og því 354 m.kr. eftir af áætluninni við lok ársfjórðungsins. Gott er að geta skilað fjármagni til hluthafa þegar tilefni er til og munum við áfram leggja áherslu á hagkvæma ráðstöfun fjármuna félagsins.
Horfur félagsins eru óbreyttar og er afkoma af vátryggingastarfsemi fyrir skatta árið 2026 og til næstu 12 mánaða áætluð á bilinu 1.800–2.500 m.kr og samsett hlutfall 93–95%. Leiða má líkur að því að neikvæð áhrif áfallinna vaxta verði minni en horfur gerðu ráð fyrir, um 900 m.kr. á árinu, þar sem vextir hafa hækkað frá áramótum. Ekki verða birtar horfur fyrir afkomu af fjárfestingastarfsemi en áætlanir félagsins gera ráð fyrir að ávöxtun fjárfestingaeigna í stýringu nemi 8,5% til lengri tíma miðað við núverandi vaxtastig og fjárfestingastefnu. Ekki verður upplýst um frávik frá afkomu af fjárfestingastarfsemi nema þær verði raktar til verulegra breytinga á óskráðum eignum eða á eignasafni.
Við gerð áætlunar er stuðst við ýmis opinber gögn, t.d. spár um þróun vísitalna, hagvöxt og áætlaðan ferðamannafjölda. Þá er litið til tjónaþróunar undanfarinna ára auk þess sem áætlað er fyrir tveimur til þremur stórtjónum á árinu.
Kynningarfundur 16. júlí kl. 16:15
Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 16.júlí kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið og fara yfir afkomu félagsins. Kynningunni verður jafnframt streymt á slóðinni sjova.is/afkomukynning. Vilji aðilar bera upp spurningar má senda þær á netfangið [email protected] fyrir fundinn eða á meðan á fundi stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.
Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár sjova.is/fjarfestar frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.
Fjárhagsdagatal
3. ársfjórðungur 2026……………………………………. 22. október 2026
Ársuppgjör 2026……………………………………………. 11. febrúar 2027
Aðalfundur 2027……………………………………………. 11. mars 2027
Nánari upplýsingar
Meðfylgjandi er fréttatilkynning, árshlutareikningur samstæðunnar og fjárfestakynning Sjóvá-Almennra trygginga hf. vegna annars ársfjórðungs 2026.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða [email protected].