Sjóvá: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 43 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 358.951 eigin hluti að kaupverði 15.704.273 kr. eins og nánar er greint frá hér:
| Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) |
| 19.10.2026 | 12:59:52 | 36.232 | 42,40 | 1.536.237 |
| 20.10.2026 | 15:29:39 | 6.820 | 43,00 | 293.260 |
| 21.10.2026 | 11:14:41 | 8.000 | 43,60 | 348.800 |
| 22.10.2026 | 10:31:49 | 150.000 | 44,00 | 6.600.000 |
| 22.10.2026 | 10:58:03 | 50.000 | 44,00 | 2.200.000 |
| 22.10.2026 | 15:29:43 | 2.347 | 43,80 | 102.799 |
| 23.10.2026 | 09:52:32 | 43.352 | 43,80 | 1.898.818 |
| 23.10.2026 | 14:54:40 | 5.200 | 43,80 | 227.760 |
| 23.10.2026 | 15:12:58 | 57.000 | 43,80 | 2.496.600 |
| 358.951 | 15.704.273 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 05.05.2026.
Sjóvá átti 9.105.626 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 9.464.577 eigin hluti eða sem nemur 0,81% af útgefnum hlutum í félaginu.
Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 14.000.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,21% af útgefnu hlutafé félagsins. Heildarkaupverð endurkaupanna verður þó ekki hærra en 500 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi 12. september 2027 eða fyrr ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir Særún Sigurpálsdóttir í síma 858-7997 eða [email protected].