Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Försäkring |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf., sem haldinn var 12. mars 2026, veitti stjórn félagsins heimild til að kaupa allt að 116.170.191 eigin hluti í félaginu, en það jafngildir 10% af útgefnu hlutafé félagsins. Heimildina skal einungis nýta í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup á eigin bréfum. Heimildin gildir í 18 mánuði og takmarkast við að eignarhald félagsins og dótturfélaga þess fari ekki umfram 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma.
Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um kaup á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins og/eða uppfylla skuldbindingar félagsins samkvæmt kaupréttarsamningum sem gerðir eru við starfsfólk í samræmi við starfskjarastefnu og kaupréttaráætlun félagsins. Félaginu hefur borist samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands („Fjármálaeftirlitið“) og munu endurkaup hefjast þegar í stað.
Félagið á í dag enga eigin hluti og munu endurkaupin nema að hámarki 14.000.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,21% af útgefnu hlutafé félagsins. Heildarkaupverð endurkaupanna verður þó ekki hærra en 500 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi 12. september 2027 eða fyrr ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.
Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags munu nema að hámarki 550.724 hlutum, eða sem nemur 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. í apríl 2026. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.
Markaðsviðskipti Kviku banka hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.
Nánari upplýsingar veitir:
Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfest[email protected]