SKAGI: Birting uppgjörs fyrsta ársfjórðungs 2026 og kynningarfundur 29. apríl
2026-04-22 17:58:54
Skagi mun birta uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2026 eftir lokun markaða þann 29. apríl næstkomandi. Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn samdægurs klukkan 16:30 í húsnæði félagsins Ármúla 3 þar sem Haraldur I. Þórðarson, forstjóri, og Brynjar Þór Hreinsson, fjármálastjóri, munu kynna uppgjörið.
Hægt verður að fylgjast með fundinum á fjárfestasíðu Skaga. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast á sömu slóð.