Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Försäkring |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Í 22. viku 2026 keypti Skagi 3.832.688 eigin hluti fyrir kr. 70.904.728 eins og hér segir:
| Vika | Dags | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
| Vika 22 | 26.5.2026 | 10:29 | 1.000.000 | 18,50 | 18.500.000 | 47.500.000 |
| Vika 22 | 27.5.2026 | 09:45 | 1.150.000 | 18,50 | 21.275.000 | 48.650.000 |
| Vika 22 | 28.5.2026 | 09:44 | 1.150.000 | 18,50 | 21.275.000 | 49.800.000 |
| Vika 22 | 29.5.2026 | 10:26 | 532.688 | 18,50 | 9.854.728 | 50.332.688 |
| Samtals | 3.832.688 | 70.904.728 |
Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 2. mars 2026, sbr. tilkynningu á markað sama dag. Þessari umferð endurkaupa er nú lokið. Samkvæmt framangreindri tilkynningu var áætlað að kaupa allt að 40 milljón hluti að nafnvirði, sem jafngildir 2,06% af útgefnu hlutafé félagsins, sem er nú kr. 1.940.311.770 að nafnvirði. Heildarfjárhæð endurkaupanna yrði þó aldrei hærri en 750 milljónir króna. Endurkaupin hófust 2. mars sl. og gert var ráð fyrir að endurkaupum myndi ljúka í síðasta lagi við lokun markaða 5. júní, eða fyrr, ef skilyrði um hámarkskap væru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.
Endurkaupum samkvæmt áætluninni er nú lokið en Skagi hefur keypt samtals 40.000.000 hluti í félaginu sem samsvarar 100,0% af þeim eigin hlutum sem að hámarki var heimilt að kaupa samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 721.220.866. Skagi á nú samtals 50.332.688 hluti eða 2,59% af heildarhlutafé félagsins.
Framkvæmd endurkaupaáætlunar var í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021, sbr. 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. framselda reglugerð nr. 2016/1052 um tæknilega staðla og skilyrði endurkaupaáætlana.
Frekari upplýsingar veitir:
Álfhildur Pálsdóttir, með tölvupósti á [email protected]