SKAGI: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun – vika 29 og lok endurkaupa
Í 29. viku 2026 keypti Skagi 790.276 eigin hluti fyrir kr. 14.820.689 eins og hér segir:
| Vika | Dags | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
| Vika 29 | 13.7.2026 | 11:05 | 425.276 | 18,80 | 7.995.189 | 72.127.964 |
| Vika 29 | 15.7.2026 | 11:54 | 365.000 | 18,70 | 6.825.500 | 72.492.964 |
| Samtals | 790.276 | 14.820.689 |
Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 29. maí 2026, sbr. tilkynningu á markað sama dag. Þessari umferð endurkaupa er nú lokið. Samkvæmt framangreindri tilkynningu var áætlað að kaupa allt að 30 milljón hluti að nafnvirði, sem jafngildir 1,55% af útgefnu hlutafé félagsins, sem er nú kr. 1.940.311.770 að nafnvirði. Heildarfjárhæð endurkaupanna yrði þó aldrei hærri en 500 milljónir króna. Endurkaupin hófust 1. júní sl. og gert var ráð fyrir að endurkaupum myndi ljúka í síðasta lagi við lokun markaða 15. júlí, eða fyrr, ef skilyrði um hámarkskap væru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.
Endurkaupum samkvæmt áætluninni er nú lokið en Skagi hefur keypt samtals 22.160.276 hluti í félaginu sem samsvarar 73,9% af þeim eigin hlutum sem að hámarki var heimilt að kaupa samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 406.816.439. Skagi á nú samtals 72.492.964 hluti eða 3,74% af heildarhlutafé félagsins.
Framkvæmd endurkaupaáætlunar var í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021, sbr. 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. framselda reglugerð nr. 2016/1052 um tæknilega staðla og skilyrði endurkaupaáætlana.
Frekari upplýsingar veitir:
Álfhildur Pálsdóttir, með tölvupósti á [email protected]