Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Försäkring |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Á aðalfundi Skaga hf. (Skaga) þann 27. mars 2025 var samþykkt að heimila stjórn, í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun, að kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10 % af heildarhlutafé félagsins.
Vísað er til fyrri tilkynningar Skaga um framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum að fjárhæð 750 milljónir króna, sem tilkynnt var um 2. mars sl. Þá er vísað í tilkynningu félagsins 29. maí 2026 um lok þeirrar umferðar endurkaupa. Stjórn Skaga hefur nú á grundvelli fyrrgreindrar heimildar ákveðið að hefja aðra umferð endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka hlutafé þess eða mæta skuldbindingum vegna kaupréttarsamninga á grundelli kaupréttaráætlunar skv. 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og til að mæta skuldbindingum vegna kaupauka í formi hlutabréfatengdra réttinda starfsmanna skv. starfskjarastefnu og kaupaukakerfi félagsins.
Að þessu sinni er áætlað að kaupa, allt að 30 milljón hluta að nafnvirði, en það jafngildir um 1,55% af útgefnu hlutafé félagsins, sem er nú kr. 1.940.311.770 að nafnvirði. Heildarfjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en 500 milljónir króna. Endurkaup munu hefjast mánudaginn 1. júní nk. og gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi við lokun markaða 15. júlí 2026 eða fyrr, ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.
Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq Iceland, hvort sem er hærra. Hámarksmagn hvers viðskiptadags miðast við 25% af meðaldagsveltu undangenginna 20 viðskiptadaga, en þó aldrei hærra en 1,15 milljón hlutir að nafnverði. Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.
Framkvæmd endurkaupaáætlunar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Endurkaupin verða framkvæmd af Arion banka, sem tekur allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.
Frekari upplýsingar veitir:
Álfhildur Pálsdóttir, með tölvupósti á [email protected]