Sýn hf.: Afkoma á þriðja ársfjórðungi ársins 2026
Áframhaldandi viðsnúningur í rekstri og mikil aukning í frjálsu sjóðstreymi
Sýn hf. birtir rekstrarniðurstöður þriðja ársfjórðungs og fyrstu níu mánaða ársins 2026. Lykilmælikvarði félagsins á frjálst sjóðstreymi, þ.e. EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum, var 407 m.kr. á fjórðungnum og batnaði um 588 m.kr. frá sama tímabili 2025.
Helstu niðurstöður þriðja ársfjórðungs
Heildartekjur á þriðja ársfjórðungi námu 5.529 m.kr. og jukust um 5,7% milli ára (3F 2025: 5.230 m.kr.). Án Sendafélagsins, sem varð hlutdeildarfélag í árslok 2025, var vöxturinn 8,6%. Hann var borinn uppi af kjarnastarfsemi: tekjur af fjölmiðlun jukust um 19,4%, internettekjur um 9,2% og farsímatekjur um 9,0%.
Aukin skilvirkni í rekstri hefur skilað sér í lægri kostnaði. Heildarrekstrarkostnaður lækkaði um 0,5% á milli ára, þrátt fyrir tekjuvöxt og kjarasamningsbundnar hækkanir. Launakostnaður lækkaði um 3,7% á fjórðungnum og stöðugildum fækkaði úr 397 í 360 milli ára. Þá lækkuðu leigugreiðslur um 8% og fjárfestingar í kerfum og rekstrarfjármunum úr 258 m.kr. í 149 m.kr.
EBITDAaL nam 1.161 m.kr. og hækkaði um 41,9% milli ára (3F 2025: 818 m.kr.). Fjárfestingar námu 754 m.kr. og var EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum jákvætt um 407 m.kr. samanborið við neikvæða niðurstöðu upp á 181 m.kr. á 3F 2025.
Tap eftir skatta nam 70 m.kr. samanborið við 238 m.kr. tap á 3F 2025.
Einskiptiskostnaður sem gjaldfærður var á fjórðungnum nam 101 m.kr., meðal annars vegna lokunar sjónvarpsfrétta og söluferlis vef- og útvarpsmiðla. Á sama fjórðungi í fyrra lækkuðu einskiptisliðir tekjur um 90 m.kr. og hækkuðu rekstrarkostnað tímabundið um 60 m.kr. Að teknu tilliti til einskiptisliða beggja ára batnaði EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum um 540 m.kr.
Hreinar vaxtaberandi skuldir án leiguskuldbindinga hafa lækkað um 1.104 m.kr. frá áramótum í 5.586 m.kr. meðal annars vegna 938 m.kr. endurgreiðslu Sendafélagsins á láni á fyrsta ársfjórðungi.
Breytt afkomuspá. Þrátt fyrir gjaldfærslu einskiptisliða, lokun sjónvarpsfrétta og hraðari greiðslum vegna sýningarréttar á Enska boltanum hefur félagið ákveðið að þrengja bilið í áður útgefinni afkomuspá. EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum er nú áætlað 0,9–1,1 ma.kr. (áður 0,8–1,2 ma.kr.) og fjárfestingar 3,1–3,2 ma.kr. (áður 3,2–3,4 ma.kr.).
Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri:
"Uppgjör þriðja ársfjórðungs sýnir að þær breytingar sem við höfum ráðist í á undanförnum árum eru að skila árangri. Tekjur halda áfram að vaxa, afkoman batnar verulega og sjóðstreymisgeta félagsins hefur styrkst. Sérstaklega ánægjulegt er að sjá vöxt í fjölmiðlun, interneti og farsíma samhliða því að við höfum einfaldað reksturinn og dregið úr fjárfestingaþörf.
"Að baki þessum viðsnúningi stendur starfsfólk Sýnar. Miklar breytingar hafa kallað á úthald, frumkvæði og samvinnu þvert á félagið. Ég vil þakka starfsfólkinu fyrir fagmennsku og mikilvægt framlag til að bæta reksturinn og veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu á þessum breytingatímum.
Í október fögnuðum við 40 ára sögu Sýnar, sem markað hefur djúp spor í menningu og sjónvarpssögu landsmanna.
Heima, ný íslensk streymisveita, er komin í loftið. Þar leiða Sýn og Sagafilm saman krafta sína og bjóða landsmönnum upp á perlur úr íslenskri sjónvarpssögu. Hægt er að nálgast Heima á sjónvarpsveitum Sýnar.
Enski boltinn er burðarás í íþróttaframboði félagsins og stendur öllum landsmönnum til boða í gegnum SÝN+ allt sport. Í október sýndi SÝN Sport 319 útsendingar, samtals 763 klukkustundir úr 27 keppnum í átta íþróttagreinum.
Á fjórðungnum tókum við þá ákvörðun að hætta útsendingu sjónvarpsfrétta eftir fjörutíu ár. Þetta skapaði grunn að enn öflugri starfsemi Vísis og Bylgjunnar. Vísir er nú mest lesni fréttavefurinn hér á landi samkvæmt netmiðlamælingum Gallup og Bylgjan er áfram langvinsælasta útvarpsstöð landsins.
Við erum stolt af þeim árangri sem við höfum náð en sjáum jafnframt fram á frekari tækifæri í nýtingu innviða og lægri föstum kostnaði á komandi árum. Samhliða þessu viljum við halda áfram að styrkja samkeppnisstöðu okkar og byggja undir arðbæran vöxt. Viðsnúningurinn er því ekki endapunktur heldur grunnur að nýju vaxtartímabili."
Fjárhagsdagatal
- Afkoma 4F og ársuppgjör 2026: 18. febrúar 2027
- Aðalfundur 2027: 19. mars 2027
Ekki verður haldinn sérstakur fjárfestafundur vegna þriðja ársfjórðungs. Næsti fjárfestafundur verður haldinn 19. febrúar 2027. Tekið er á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið [email protected]. Nánari upplýsingar má nálgast á syn.is/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.